Það var mjög heitt í bílnum svo við stoppuðum líka við einhver krúttlegan appelsínugulan vita til að laga Söru. Ég tók svo símafund í vinnunni á milli kl 11-12 sem gekk betur en ég þorði að vona þó svo að ég hafi dottið út og farið í gegnum göng á leiðinni.
Komum á Höfn í Hornafirði um kl 11.40 þar sem ég kláraði fundinn á meðan hinir léku sér á hoppudýnu. Siggi keypti handa okkur versta kaffi sem ég hef smakkað. ☕ Eftir fundinn fór Siggi með börnin í sund á meðan við mamma fórum og fengum okkur humarsalat á höfninni. Þar lentum við í reiðum reykjandi ítölum sem endaði þó vel.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli