miðvikudagur, 8. júlí 2020

Dagur 8 (2/2) - Fárskrúðsfjörður - Djúpivogur (Bragðavellir)

Stoppuðum á Fáskrúðsfirði í 14°c og smá úða en samt var heitt og bjart. Fallegur bær og ótrúlega skemmtilegt leiksvæði með allskonar útileiktækjum, aparólu og hoppudýnu. Lékum og borðuðum nesti á bekk við tréin. Skoðuðum svo bæinn og frönskuhúsin. 
Það sem stóð hvað mest uppúr var (að við höldum) Andey sem er eyja sem sást frá Fáskrúðsfirði og var mjög töff. 😍 Við sáum líka fiskeldi. 🐟
Við keyrðum svo áfram og framhjá Stöðvafirði en stoppuðum ekkert þar sem við fórum í síðustu hringferð á steinasafn Petru. Mamma fann þýska götu. 😊 Um 17:10 keyrðum við framhjá Breiðdalsvík en þar var lítið að frétta og fámennt. Tókum samt rúnt um bæinn. Á austurleiðinni eru GEGGJUÐ fjöll. Við eigum ekki orð yfir þessari fegurð! ⛰🏔⛰
Komum loks að Djúpavogi og skoðuðum Eggin í Gleðivík sem var mjög skemmtilegt. Sætur bær og amma Magga var mjög hrifin. Stoppuðum samt stutt því allir voru orðnir þreyttir og svangir og gistingin ca 10 min frá Djúpavogi.
Áttum bókaða gistingu á Bragðavöllum sem eru lítil krúttleg hús (sumarbústaðir). Ég eldaði túnfiskspasta á meðan krakkarnir léku sér. Við gáfum líka öndum bóndans brauð. 🦆
Eftir mat fór Siggi með krakkana í göngu upp að fossi á meðan ég svæfði Söru.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli