Um kl 10 skelltum við okkur svo í Höfðavík í 16°C og sól. Við völdum Höfðavík fram yfir Atlavík að þessu sinni þar sem þar var hoppudýna og leiksvæði fyrir krakkana.
Eftir æðislegan tíma í Höfðavík fórum við í Bónus og fylltum á nestið og drykkina, tókum bensín og kvöddum Höllu, Fannar og frændur. 😳 Við héldum ferðalaginu áfram í austur og keyrðum fyrst á Seyðisfjörð sem er mjög fallegt bæjarstæði og aðkoman að því gordjöss!
Þaðan keyrðum við á Reyðarfjörð og fórum í Mollan sem er að ég held verslunarmiðstöð fjarðarins. Leituðum að róló og/eða hoppudýnu en þar var bara lítill róló og hoppudýnan óuppblásin (erfitt að uppfylla kröfur borgarbarnanna). Tókum stöðuna og ákváðum að halda áfram að Djúpavogi þar sem við áttum gistingu bókaða um kvöldið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli