þriðjudagur, 7. júlí 2020

Dagur 7 (2/2) - Egilsstaðir

Eftir Skriðuklaustur vissum við ekki alveg hvað við áttum af okkur að gera því klukkan var bara 12.30 og hitinn um 7° svo við skelltum okkur að Kárahnjúkum (um 60 km akstur þaðan). Það er alveg magnað mannvirki sem að okkur skilst hafi kostað um 133 MA að byggja! Útsýnið var æði og manni fannst maður virkilega peð á plánetunni jörð þar í samanburði. 😳
Þaðan fórum við svo í Atlavík en þar sem veðrið var ekki frábært og allir orðnir svangir þá stoppuðum við bara og tókum mynd af Atla.
Komum á Egilsstaði og leituðum að einhverjum stað til að borða á en eins og í síðustu hringferð þá virðast opnunartímar hér bara vera skraut og ekkert opið nema sjoppur? 💩 Eftir smá leit fundum við samt pizzastaðinn Ask þar sem við Siggi borðuðum geggjaðar camenbert brauðstangir og hálfmána á meðan börrnin fengu sér Nutella pizzu. 😁
Eftir pizzuna keyrðum við á Borgarfjörð Eystri sem er æði! Lögðum af stað um 16 og vegalengdin er um 70 km. Ótrúlega flott og stórbrotin leið. 😍 Fengum fínt veður og sól en töluvert rok. Keyrðum um bæinn og stoppuðum við lundaklettinn til að sýna krökkunum lundana. Fórum á kaffihúsið og fengum okkur köku og kakó en amma Magga vildi bíða í bílnum og missti því af því. Leituðum af róló en fundum ekki svo við keyrðum aftur til baka ca 19.30. Vorum komin á Egilsstaði um kl 20.30 en þá fóru allir í sund nema ég og amma Magga. Amma fór upp á hótel en ég þvoði af okkur fötin á tjaldsvæðinu (flott aðstaða). Eftir sundið var ískvöldmatur á N1 og svo ró uppi á hóteli. 
Siggi og Fannar fóru samt í einn drykk á meðan við systur svæðum litlu börnin.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli