þriðjudagur, 7. júlí 2020

Dagur 7 (1/2) - Egilsstaðir

Vöknuðum um 9 til að fara í morgunmat. Halla, Fannar og frændur voru komin á undan okkur. 
Eftir matinn lögðum við af stað í Skriðuklaustur. Á leiðinni stoppuðum við á Vallanesi sem er lífrænt kaffihús og staðurinn þar sem vörurnar frá Móður nátturu eru framleiddar. Þar fengum við mjög gott kaffi og Siggi hitti finnskan strák sem er að vinna þarna í sumar í gegnum Nordicjob. Hann var bara búinn að vera hér í 2 vikur en gat reddað sér vel á íslensku. Mjög viðkunnalegur og við vildum helst bara ættleiða hann! 😁
Stoppuðum líka á leiðinni í Skriðuklaustur hjá gönguleiðinni "Ormurinn" sem er stutt en mjög skemmtileg og barnvæn gönguleið. Þar sáum við rúm, tréhús, fórum í reipitog og sungum saman ja ja ding dong 🤣
Eftir gönguna keyrðum við beint á Skriðuklaustur þar sem við skoðuðum hús Gunnars Gunnarssonar (Gunnarsstofu). Ótrúlega fallegt hús og að okkur skilst þá var það og er enn eitt af stærstu einbýlishúsum landsins. Þar var m.a. að finna Margrétar sögu sem var skemmtilegt þar sem tvær slíkar eru með okkur í ferðinni. 😁 Á safninu fylgdi okkur kona sem útskýrði allt og þar var margt að finna um Klaustrið sem á sér áhugaverða sögu m.a. þar sem það var byggt á tímum siðaskiptanna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli