Vöknuðum og skelltum okkur í morgunmatinn. Þar voru þjónarnir mættir af Gamla bænum og allt mjög vandró. Atli braut disk sem var pínu fyndið fyrir okkur hin. Pökkuðum niður og lögðum af stað til Egilsstaða um kl 11. Keyrðum framhjá Hverunum og stoppuðum á leiðinni til að skoða Dettifoss sem var æði! Ca. 1km labb að fossinum sem er risastór. Á leiðinni hittum við glaða íslendinga sem allir buðu góðan daginn - skemmtileg stemmning. 😁
Keyrðum svo beint til Egilsstaða þar sem það var lítið sem ekkert á leiðinni nema sandur og steinar.
Komum um kl. 14.15 á hótelið og hittum Höllu, Fannar, Aron, Axel og Óliver. Máttum ekki check-in fyrr en 15 svo við fórum á róló og rúntuðum um bæinn í 45 min (kirkjan, Vilhjálmsvöllur...) ⛪🌁🏠🏡🏚🏘
Þaðan fórum við aftur á hótelið, settum dótið okkar inn og tókum ákvarðanir um næstu skref. Konan á hótelinu mælti með róló sem var í Selskógi svo við fórum þangað. Fórum inn stíg sem endaði í 2-3 km göngu að róló sem var í raun ca 200m frá bílnum 😅
Þá var klukkan að verða 5 þannig að við fórum upp á hótel í smá afslöppun. Skelltum okkur á happy hour rétt fyrir matinn en við vorum búin að panta borð á Nielsen kl 19.15 😁
Fórum á Nielssen sem er veitingastaður í elsta húsinu hér og í eigu ungra hjóna. Æðislegur staður, matur og þjónustan var 5-stjörnu! Maturinn var geggjaður (smáréttir) og verðið sanngjarnt m.v. gæði. Mæli svo sannarlega með þessum stað! 🤗

Eftir matinn fórum við aftur upp á hótel. Krakkarnir fóru út að leika til 22.10 á meðan við hin svæfðum litlu krílin. Við Siggi horfðum svo á Erin Brockowich sem ég hafði ekki séð í 10 ár 😹
Engin ummæli:
Skrifa ummæli