sunnudagur, 5. júlí 2020

Dagur 5 (2/2) - Akureyri - Mývatn

Kvöddum liðið og þökkuðum þeim fyrir samveruna um helgina og lögðum af stað á Mývatn. Stoppupum á Daladýrð húsdýragarði sem smá "surprise" fyrir afmælisBjarka. 🎉 Daladýrð er æðislegur staður, gaman að hlaupa um, skoða dýrin og leika sér að hoppa í hey. Við urðum ástfangin af pínulitlum hvítum kiðling sem við knúsðum öll í klessu 💖🐐
Það var geggjað veður og okkur fannst þetta skemmtilegur staður (kostaði 7500 fyrir okkur öll).
Þegar við vorum að leggja af stað aftur tók ég allt úr skottinu til að ná í drykki og nesti fyrir alla. Ég var ekki nema rétt búin að taka draslið út, hélt á fullt af útifötum, þegar sveitahundurinn mætir og MÍGUR Á ALLT DRASLIÐ!!!! Ég stóð s.s. gargandi að reyna að ýta honum í burtu á meðan fjölskyldan KAFNAÐI úr hlátri inn í bíl! 🐶🤡 
Þurfti að þurrka af öllu með tilheyrandi gleði! 🤬
En þaðan brunuðum við svo á Goðafoss og en sú dásemd! 😍 Við bara stóðum öll og störðum í 18° og roki. 
Keyrðum svo framhjá Laugum sem er lítill bær með sundlaug sem við mundum ekki eftir að hafa heyrt um? 
Komum á Mývatn um kl 17.15 og fórum beint á hótelið (Icelandair). Flott hótel og við heppin í fjölskylduherbergi (amma og Bjarki voru svo saman í öðru). Allir frekar þreyttir eftir daginn svo við tókum smá ipad/tv, dóta og lita pásu áður en við fórum út að borða. 😁
Matsölustaðurinn á hótelinu var lokaður og fórum við þvi á veitingastaðinn Gamli Bærinn sem var á móti hótelinu. Ég get ekki mælt með þessum stað og eru nokkrar ástæður fyrir því. Þegar við komum þangað var ekki til það sem börnunum langaði í af matseðli (rif) en á næsta borði voru krakkar með natchos  og laukhringi (sem voru ekki á matseðli) og börnunum langaði mikið í. Við spurðum hvort að þau gætu líka fengið svona en þá kom í ljós að þetta voru vinir eigandans og því bara í boði fyrir þau en ekki neinn annan!! Þarna vorum við búin að láta vita að Bjarki ætti afmæli en það skipti engu. Við pöntuðum því bara annað af matseðli. Mjög litlir skammtar og RÁNdýr matur! Eftir matinn vorum við að vona að þau myndu gera eitthvað fyrir Bjarka í tilefni dagsins (kannski er það tilætlunarsemi af okkur en so far höfum við aldrei farið á stað sem gerir það ekki, sérstaklega þar sem við hefðum þá væntanlega keypt líka fyrir okkur hin sem eru þá 6 auka skammtar í sölu). En NEI það var sko ekki í boði! Mjög fúlt og leiðinlegt og óvænt!😵 En hann er svo góður og vonbrigðin meiri fyrir foreldrana sem vildu gleðja barnið að hann var sáttur við sitt combó - hamborgara með súrum gúrkum og kókómjólk - góð blanda! 😅Eftir matinn fór amma Magga upp á hótel á meðan við keyrðum um bæinn í leit af rólóvelli. Eftir smá leit fannst hann við skólann. Æðislegt svæði með hoppudýnu, róló (leikskóla), rólum, rennibrautum, körfum, battavelli o.fl. Við lékum okkur heillengi og enduðum svo á að keppa í fótbolta, börn á móti foreldrum í 16° og sól. Börnin unnu! 🎉 Fórum svo aftur á hótelið þar sem Siggi fór með börnin í pottin á meðan ég kíkti til ömmu Möggu og við hringdum í Höllu til að plana morgundaginn. Eftir það horfðum við saman á Weddingsinger sem var æði! 😁

Engin ummæli:

Skrifa ummæli