Við fórum svo í síðasta morgunmatinn á Hótel Eddu, gengum frá á meðan krakkarnir léku sér í leikherberginu og stimpluðum okkur út tilbúin í næsta ævintýri 😊
Næst á dagskrá var hoppudýnuróluvallaferð að ósk afmælisbarnsins og svo var Atla skutlað í hádegismat með liðinu sínu. Þá höfðum við hin smá tíma fyrir síðasta leik mótsins og var ósk afmælisbarnsins að fara á klifurróló sem við og gerðum. 🎉
Enn var smá tími áður en leikurinn byrjaði svo við tókum rúnt um Akureyri, m.a. i bústaðinn sem við gistum gjarnan í á veturnar og framhjá Bjarmastíg 8 þar sem amma Magga fæddist.💖
Fórum svo snemma út á KA völlinn, hittum Atla og liðið í ROSA góðu veðri (14° á mæli) og loks var loka leikurinn á mótti Þrótti. Leikurinn fór 1-1 en KR átti milljón skot á markið en Þróttur bara þetta eina. Endaði í vító sem tók verulega á mömmutaugarnar! 😳 Atli skaut fyrstur og var það öruggt mark! ⚽️ Kári var í marki og varði fyrsta skot Þróttar við mikil fagnaðarlæti! Skorað var úr næstu spyrnum og endaði þetta því í sigri KR 3-2! 🎉👏⚽️ Glæsilegur endir á góðri ferð og 7.sætið þeirra!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli