Eftir leikinn vildi hann fara með liðinu í sund og chill en við hin fórum til Húsavíkur. Æðislegur bær og við fengum 18° á snapchat og upp í 26° í Vaðlaheiðagöngunum sem við vorum að prófa í fyrsta sinn!
Á Húsavík spiluðum við auðvitað "ja ja, ding dong" (Fire saga), fórum í bakarí, sátum úti og höfðum það gott. Bærinn er mjög krúttlegur, mikið að fólki út um allt og stemmningin góð. 😊
Lögðum af stað aftur um 17 eftir stutt stopp í Pennanum bókabúð þar sem við keyptum kort og heyrnatól fyrir Bjarka í afmælisgjöf. Þegar við komum aftur til Ak-city fengum við okkur "Akureyrískar" pylsur á torginu, hittum Gaua í milljónasta sinn, og fórum svo upp á hótel að spila á meðan Siggi svæfði Söru (2x Ólsen, 2x expl. Kitten, 2x Scrabble og 2x pool).
Engin ummæli:
Skrifa ummæli