Þegar Siggi og Atli komu til baka fórum við í morgunmat, lékum okkur smá í leikherberginu og svo fórum við i Bónus að fylla á drykki og nesti.
Eftir Bónus horfðum við á Nökkva keppa á móti KA (3-1) tap en Nökkvi snillingur átti auðvitað markið. 👏
Eftir leikinn fórum við í Kjarnaskóg og borðuðum nesti við ánna. Æðislegasti staður í heimi og maður endurnærist bara á því að vera í þessu fallega umhverfi á svona góðum degi ☀️💖
Næst á dagskrá var svo stutt stopp á Glerártorgi að kaupa sumarbol í afmælisgjöf fyrir Gaua því hann elskaði bolinn sem ég keypti fyrir Sigga (sjá mynd hér að ofan). 🤣
Engin ummæli:
Skrifa ummæli