Þegar við komum til Siglufjarðar var það fyrsta sem við gerðum að skoða húsið sem ég bjó í sumarið 1993 en það sumar fór ég með fjölskyldu bróður pabba þangað til að passa börnin þeirra. Húsið og tréið þar fyrir utan var alveg eins og í minningunni (Hávegur 15). 💖
Eftir það sýndi amma Magga okkur hvar hús langömmu og -afa var og fleira fróðlegt. Síðan skelltum við okkur á Kaffi Rauðku í pizzu og lemon tart sem var GEGGJAÐ!! Á meðan við nutum okkar í sólinni léku börnin sér á æðislegum rólóvelli við hliðiná veitingastaðnum (ég elska allt sem er barnvænt!💖). Við fórum svo saman í mini-golf og bjuggum til leik á blakvellinum sem heitir "Kung-fu-mama" 😅. Á meðan við vorum á kaffihúsinu kom jarðskjálfti upp á 3.2 sem bara Siggi og Bjarki fundu fyrir þar sem þeir fóru á klósettið á meðan við vorum úti að leika. Þar hittum við líka Hildigunni og co (dóttur G&E) 😊
Frá Siglufirði var aftur keyrt til Akureyrar þar sem við fengum okkur ís í Ísgerðinni áður en við kvöddum Atla fyrir nóttina en hann gisti í Síðuskóla með liðinu sínu. Fyrir utan Ísgerðina hittum við Gaua, Örnu og co sem var gaman "as always"!🎉🎉
Engin ummæli:
Skrifa ummæli