föstudagur, 3. júlí 2020

Dagur 3 (1/2) - Akureyri

Dagur 3 byrjaði og endaði á Akureyri! 😁

Siggi vaknaði á undan öllum til að horfa á Atla keppa á móti ÍR. Atli skoraði bæði mörk KR í sigurleik sem endaði 2-0! 👏
Eftir leikinn mættu þeir feðgar á hótelið og við fórum öll saman niður í matsal í morgunmat. Fljótlega eftir morgunmatinn var komið að næsta leik sem við horfðum öll á. Sigurleikur á móti Haukum 1-0! 😁
Eftir leikinn fór Atli með liðinu í hádegismat og var svo planið að hitta hópinn á rólónum við sundlaugina eftir matinn. Við fórum þangað en eftir langa bið eftir liðinu kom í ljós að þeir nenntu ekki að labba á rólóinn og höfðu þvi farið á annan sem var nær KA heimilinu svo við hittum þá ekkert í þetta sinn. 🙈
Eftir rólóferðina skiptum við liði, Siggi fór að horfa á Atla keppa síðasta leik dagsins á móti Breiðablik á meðan við hin fórum á Glerártorg (aka mollið). 💸💸💸
Leikurinn fór 3-2 fyrir KR á móti Breiðablik og átti Atli fyrsta markið! ⚽️
Við hin skemmtum okkur vel á Glerærtorgi og náði ég að versla mér meira en ég ætlaði (surprise!) eins og t.d. bol á Sigga, kjól á mig og sápukúluvél!
Eftir leikinn komu þeir feðgar og pikkuðu okkur upp og við skelltum okkur öll saman út í Hrísey! 🙏 
Þetta var í fyrsta sinn fyrir alla nema ömmu Möggu en ég er nokkuð viss um að þetta hafi ekki verið í síðasta skipti. Við urðum öll mjög hrifin af eyjunni þó svo að við höfum ekki náð að skoða mikið eða stoppa lengi. 💖
Áður en við fórum aftur í land stoppuðum við og fengum okkur að borða á veitingastaðnum Verbúð 66 þar sem allir kláruðu matinn sinn upp til agna SEM GERIST NÁNAST ALDREI Í ÞESSUM 7 MANNA HÓP! 😁 Þjónustan var frábær og Bjarki elskaði samlokuna sína og franskarnar svo mikið að hann segir að þetta sé núna uppáhalds matsölustaðurinn sinn í öllum heiminum! 💛

Engin ummæli:

Skrifa ummæli