Þaðan fórum við í jólahúsið og dásamlegu búðina á móti þar sem eg keypti geggjað lemon curd og karmellupopp og eins litla gjöf. Bjarki fékk sér sykur epli en mamma og Sara vöfflu á pinna.
Næsta stopp var svo á Holtaseli sem er mjólkurbú sem framleiðir geggjaðan pistasíuís sem við Siggi ELSKUM! Þar voru líka kýr, gæsir, hænur og æðislegur hundur sem gaf mér stein við komuna og lék svo endalaust við krakkana. 💖
Þaðan fórum við svo með Atla í kvöldmat en á meðan hann borðaði fórum við hin aftur á róló en nú þennan stóra fyrir aftan sundlaugina (2 hoppudýnur og læti!). Eftir það var leikur á móti Gróttu sem fór 1-1 og átti Atli markið fyrir KR ⚽️👍🎉 Atli fór svo sem liðinu í sund og upp í skóla á meðan við fórum út að borða, sáum fornbíla og svo upp á hótel.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli