Fórum og tékkuðum okkur inn á Eddu hótelherbergið okkar og svo skiptum við liði; Atli, Siggi og Maddý fóru saman að koma Atla fyrir í Síðuskóla og svo var keppt á móti Leikni sem vann 1-0 😕
Við hin (ég, mamma, Bjarki og Sara) fórum í miðbæinn og keyptum skó á Söru, gáfum Bjarka pylsu og svo fórum við á Sykurverk (bleik kökubúð) og fengum okkur kökur og með'í!
Svo löbbuðum við bæinn fram og til baka, gengum upp kirkjutröppurnar, fórum á róló og hittum loks hinn helminginn við andarpollinn hjá sundlauginni.
Þaðan lá leiðin í Kjarnaskóg með KR-liðinu hans Atla en þar hittum við líka Gaua, Örnu, Nökkva fótbolta snilling í Breiðablik og Sölva.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli