Við stoppuðum líka í Staðarskála og fengum okkur franskar. Þar fengu yngri börnin að leika sér á leiksvæðinu og strákarnir hittu nokkra fótboltakunningja.
Eftir Staðarskála var förinni heitið til Hvammstanga sem er ótrúlega krúttlegur staður. Merkilegast að okkar mati var Kaupfélag Vestur Húnvetninga (sem við köllum mini-target) og svo hvað húsin þar eru öll stór og að allir þar virðast eiga flotta bíla 🤣🚘 Svo var auðvitað skellt í koss á kitkjutröppunum til að hræða börnin (er að detta í hefð hjá okkur hjónum) 🤣🤣🤣
Eftir Hvammstanga keyrðum við á "hótelið" okkar í Víðidal sem heitir Dæli. Þetta er gamalt hús sem búið er að gera upp og skiptist í 2 herbergi með sérinngangi og risíbúð. Mér leist ekkert á þetta fyrst en þetta er æði! 💖 Hér er mini-golf og svo geggjað gljúfur sem heitir Kolugljúfur (skalf nánast þegar við keyrðum yfir brúnna 🐓). Mæli með að skoða það ef þið viljið smá keyrslu fyrir geggjað útsýni.
Þar sem klukkan var rúmlega 17 þegar við mættum í Víðidalinn og börnin orðin þreytt þá slepptum við Vatnsdalshringnum og fórum frekar á Blönduós. Þar keyrðum við um bæinn, kíktum á rólóinn og fórum á hoppudýnuna. Við enduðum svo á því að borða eþíópískan mat á stað sem heitir Teni og er við sundlaugina. Börnin fengu pizzu, hamborgara og samloku af barnamatseðli en við skiptum framandi matnum á milli okkar. Í fullri hreinskilni þá get ég ekki mælt með þessu en þjónustan var frábær. 💖
Engin ummæli:
Skrifa ummæli